Venjulegt samtal milli mín og ErluMaríu minnar á msn....
Ásrún says:
æji erla nenniru að hanga í kvöld saman oke ég bara hoppa í einkaþotuna mína núna og kemt il þín eða þúst þá höngum við bara saman á morgun á þínum tíma oke ?! getum bakað pönnsur saman með syrope
erlamaria.bloggar.is says:
já auðvitað
erlamaria.bloggar.is says:
hehe
Ásrún says:
og síðan hangið inní stofu og hlustá john mayer og skoðað píanóbækur og síðan ákveðið um að fara í göngutúr nema sá göngutúr er stuttur eftir 2 mín labb og við sjáum pítsubúð á horninu rétt hjá þér þar sem maður getur keypt allskonar pitsur, frá öllum löndum, tilbúnar og ótilbúnar á öllum stigum, allt álegg á pítsur og fleira oke?!
erlamaria.bloggar.is says:
oohh ef við bara ættum einkaþotur!
erlamaria.bloggar.is says:
ókei!
Ásrún says:
og síðan förum við heim og bökum pítsuna nema þá er skoh spánardiskurinn okkar góði á fóninum með pussycat dolls og shakiru og gerum eldhúsið svo skítugt að við ákveðum að taka mynd af því og erum alveg heillengi að ákveða hvort við ættum að senda svandísi myndina eða ekki því við viljum ekki vera ábyrgar að hún deyji úr hjartaáfalli!!!!
Ásrún says:
;D
Ásrún says:
oooo erla ég gæti skrifað bók um æðislegu vináttu okkar !"
erlamaria.bloggar.is says:
erlamaria.bloggar.is says:
nei elskan, við gætum skrifað margar bækur!
Ásrún says:
truuuue!
erlamaria.bloggar.is says:
haahaha
erlamaria.bloggar.is says:
annars er Svandís svo vön óhreinum eldhúsum, ég held hún myndi sko ekki fá hjartaáfall
Ásrún says:
Erlamaría&Ásrún; the true legends books.... 1-7 !
erlamaria.bloggar.is says:
hahahaha
Ásrún says:
ahahahah !
erlamaria.bloggar.is says:
hihihi
erlamaria.bloggar.is says:
Ásrún says:
góð erla góð
Ásrún says:
blutooth hæ fæv, nærðu því nærðu því????
Ásrún says:
náðiru því ?
erlamaria.bloggar.is says:
hahahhaa
erlamaria.bloggar.is says:
yep
erlamaria.bloggar.is says:
Ásrún says:
vij!
erlamaria.bloggar.is says:
nei
Ásrún says:
díng
erlamaria.bloggar.is says:
Ásrún says:
ha?
Allanvega blogga kannski almennilegt blogg í kvöld ;D!
LotsOfLuuuv!
-Ásrún
2 dagar i nemó, 30 dagar í árshátíđ fb, 59 dagar í dk og svíţjóđ og 162 dagar í Benidorm !!! ;D

....Ef ég kann að telja rétt þá er Þetta á titilnum Rétt =)
En jæja þá loksins er maður einhvað að frískast hérna! Fékk þriðja pensilín kúr ársins í dag hjá ólafi lækni, fyrir kinnholubólgu. Eins gott ég verð orðin frísk fyrir nemó á fimtudaginn, hlakka of mikið til!!
Síðan verður Árshátíð FB 6 mars á Hótel Keflavík 6 mars og að sjálfsögðu yfir nótt =) Hef heyrt þessar árshátíðir séu ansi skrautlegar og þrælskemmtilegar ...
Allanvega míns ætlar að fara að horfá grey's anatomy og fara að sofa, því ég verð nú að fara í skólan á morgun
-Ásrún
Hann sagđist elska mig, ég hnerrađi og sagđi "sorry ég er međ ofnćmi fyrir kjaftćđi!"
Jæja þá dreg ég skottið á milli fótana í skömmustu göngu minni, eftir að hafa montað mig í drasl að ég sé að fara til kína í sumar. En sannleikurinn er sá að asíuævintýrið mitt er bara líklegast búið áður en það hófst. Planið var það að ég myndi fara til Erly minnar í miðjan júlí og við myndum kannski ferðast smá, gista á hræódýrium draumahótelum, versla sjúklega ódýrt og sleikja sólina vel og síðan myndi Erla verða samferða mér heim í byrjun ágústs þar sem hún er að koma aftur heim í sumar. Eftir að hafa fengið nauðsynlega styrki til að komast út (aka búin að tala pabba til í að borga hálfa ferðina) og var alveg orðin 100% viss þá bara komst það í ljós að á þeim tíma eða í júlí þá er Erla bara nýbúin í skólanum, á kannski ekki það mikinn pening til að ferðast og þarf að fara að undirbúa sig fyrir heimförina. Einnig er þvílíkur hiti í Kína í júlí að Elín vinkona mín sem hefur búið í kína í 10 ár sagði að manni verður illt alveg innað beininu hitinn er svo mikill.
En ég dey ekki ráðlaus og staðráðin að fara til útlanda þetta árið var það bara að ákveða hvert og með hverjum. Erna, Stina og fleiri stelpur úr Fb ætla að fara til Costa Del Sol í miðjan júlí á Timor sol og það var nú frekar freistandi. En ég ákvað þó á endanum að fara til Benedorm með Sif,Addý, Guddu og Kareni a sama tíma og sulla og flippa með þeim. 
Og eg er líka búin að plana að fara með Elmu minni til Denmark (DK!) í apríl í 10 daga og ferðast smá, ss flakka a milli Arhus, Odense og Köben og skipta tímanum á milli að skoða, sulla, versla og sulla ;D!! get ekki beðið, sérstaklega því það er svo langt síðan ég hef farið 2svar á ári til útlanda, eða 2003 ;D
Annars er litið að frétta þar sem eftirkvillar Endajaxlatökunar minnar og síðan undarfarið einnig hálsbólga, kvef og kinnholubólga hafa dregið mig niður seinustu eina og hálfa vikuna. Komst í ljós að skurðurinn eftir endajaxlinn opnaðist aftur seinustu helgi og einhver sma sýking kom sem lýsti sér í gríðalegum sársauka en tannsinn náði Þó að redda því =) hvernig er þó önnur saga sem þarf ekkert að vera að segja frá hehe =)
En eg ætla að fara í háttinn, löng helgi frammundað meðal annars babyshower, vinna alla dagana, sprengjuhöllin á organ og ansi margar fullar þvottavélar sem taka einhvern tíma.
Góða nótt og lifið í lukku...
-Ásrún
Flott eđur ei ?


Í dag finnst mér svart naglalakk vera æðislega klassískt og high fashion-leg, ég var orðin pínu leið á þessum vanarlega rauða eða vínrauða sem ég sporta allta. Ég keypti mér eitt stykki naglalakksflösku frá Opi sem ber nafnið black onyx og hef notað það síðan. En það skal varast að nota með bara svörtum fötum, þú vilt ekki lýta út sem einvher djöfladýrkandi. Þannig passa þarf að seta það saman með ljósari litum af fötum og stuttum neglum, ef það er sett á langar neglur lýta þær bara út sem nornaneglur. Einnig er að fara að koma út litur hjá Opi sem heitir Russian navy sem ég hlakka mjög til en það er dökkblár litur sem hentar kannski aðeins betur ef maður vill hafa naglalakkið hversdagslega, eða fyrir þá sem eru aðeins íhaldssamari.

Allir geta sportað svarta naglalakk lookið rétt, bara með réttu fötunum. Það er ekki alveg sniðugt fyrir manneskjuna sem er í gallabuxum alla daga í íþrótta kósí peysuni og strigaskónnum. En ef þú ert í fallegri kápu, með hárið uppsett og kannski perlum, er lookið ávalt klassískt. Með kveðju
-Ásrún
Sól um nótt..
Síðan var ég að byrja að vinna í gs skóm á laugardaginn seinasta, illa þunn að vana. Og það fyrsta sem var sagt við mig var “Velkomin í fyrirtækið; æðisleg föt en ömurleg laun!” ;D fíla þetta í tætlur.. Tilhugsunin samt um mig að vinna í skóbúð, hehe mun taka með mér skópar heim eftir hverja vakt, var nú miklu duglegri en það seinustu vakt hehe.. En nóg með það ætla að fara að halda áfram að sturta nýju sýklalyfjunum í mig .. Nýjar myndir frá seinustu helgi komnar :P Sniildarhelgi þótt myndirnar sýna það kannski ekki haha :D
-Ásrún
